Halló!! Það er allt við það sama hjá mér þessa dagana,
alveg nóg að gera í að sinna vinnuni, skólanum og náttúrulega ÖLLU
hinu sem ég þarf að gera til að eiga líf
Fór í gær og verslaði smá föt alveg óvart
alltaf
svoleiðis þegar maður ætlar ekki að kaupa neitt. En ég er að fara í
óvissuferð á morgunn með skólanum sem ég er í æfingarkennslunni í,
voða spennandi, fyrsta skiptið sem ég fer í óvissuferð sem ég veit
ekkert hvað á að gera eða fara, afþví að ég er ekki að skipuleggja
hana
þannig að þetta verður örugglega voða gaman, það er
kúrekaþema þannig að mín varð náttúrulega að eiga almennilegann
kúrekahatt, mín fór náttúrulega og kippti því í lag í
dag og keypti þennann glæsilega kúrekahatt, hann glitrar
svona
silfur
það má ekki klikka á skvísuhlutunum. Ég vona að það
verði farið að hestbak, en það verður kanski meira bara farið í
línudans eða eitthvað svoleiðis
vona samt meira hestana. Ég er í
fríi alla helgina þannig að ég ætla að njóta þess alveg rosalega og
hafa hana alveg æðislega, hlakka svoooo til.
Maður er búinn að vera hálf lúinn í dag, eftir að hafa
vakað yfir Magna í nótt, þetta er ekkert smá flott hjá honum, ég
var samt alveg í stökustu vandræðum með að halda mér vakandi, en
það hafðist, svona að mestu leyti.
EN núna ætla ég að hætta þessu blaðri og fara að koma
mér fljótlega í háttinn það er víst Boot Camp í fyrramálið, betra
að hvíla sig vel því það er langur dagur á morgunn, alveg frá 6 og
framm á nótt þegar maður hunskast heim
Það verður víst að
kíkja aðeins í bæinn með þessu liði og passa að þau hagi sér
almennilega og fari sér ekki að voða, afþví að maður
er alsekkert í þeim pakkanum sjálfur
ætla bara að kíkja svona
sem siðgæðisvörður, he he.
En góða nótt og bless kv Rakel kúrekastelpa